Einræðisefni

Í fyrradag stakk ég upp á því að við myndum velja okkur einræðisherra til að bjarga okkur úr efnahagslegum ógöngum.  Það var að sjálfsögðu bara til gamans gert, enda fátt andsnúnara okkar hugmyndum um stjórnarfar.

En til að velja slíkan leiðtoga þá útbjó ég stöðupróf í 5 liðum og bauð áhugasömum að spreyta sig.  Rétt svör eru þau sem stemma við bók Naomi Wolf, "Endalok Ameríku - varnarorð til föðurlandsvinar" sem kom út í minni þýðingu nú í nóvember. 

Réttu svörin eru:

Fasískum umskiptum er erfitt að koma á.  Er þessi staðhæfing rétt?
Það er ekki rétt.  Alræði er reglan, lýðræði er undantekning (B).

Hornsteinn einræðisríkis er:
Leynifangelsi þar sem halda má fólki án dóms og laga (A).

Fólk þekkir alltaf áróður frá sannleika.  Rétt eða rangt?
Rangt. Fólk fellur frekar fyrir stórri lygi heldur en lítilli. (B)

Hvað er samizdat?
Fréttablöð laus við ritskoðun stjórnvalda. (B)

Mussonlini og Hitler urðu einræðisherrar með lögmætum hætti.  Rétt eða rangt?
Rétt - þeir grófu undan lýðræðinu án þess að brjóta leikreglur lýðræðis. (C)

Rétt svör eru því BABBC.

Einræðisefnin eru svo hér í stigaröð:

Bofs 4
Ragnheiður Gestsdóttir 4
Sveinn Ingi Lýðsson 4
Bjarni Kjartansson 3
Ólafur Björn Ólafsson 3
Villi Ásgeirsson 3
Molta 3
Magnús Jónsson 2
Fannar Mannheim 1

Stöðuprófið í heild sinni er hér. Takk fyrir þátttökuna!


mbl.is Fréttaskýring: Vígreif varnarræða seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband